Fasteignaviðskipti - Danmörk/Ísland II
19.7.2017 | 19:56
Í fasteignaviðskiptum í Danmörku er það viðurkennt að bæði seljandi og kaupandi þurfa að vita sitthvað um ástand eignarinnar. Það er ekki nóg að kaupandi komi einu sinni og skoði eignina áður en gengið er frá kaupunum og flutt er inn. Danir eru ekki eins hrifnir af hugtakinu "þetta reddast" eins og við Íslendingar.
Áður en gengið er frá fasteignakaupum í Danmörku er venjan að seljandi panti eins konar úttekt á eigninni í formi ástandsskýrslna. Þessar skýrslur eru annars vegar ástandsskýrsla eignarinnar, tilstandsrapport, og hins vegar sérstök skýrsla um rafkerfi eignarinnar, El-rapport. Skýrslur eru útbúnar af verkfræðingum, tæknifræðingum eða öðrum sérfræðingum á þessum sviðum. Þótt það sé seljandi sem pantar þessar skýrslur er það klárt að sá sem útbýr skýrsluna er ekki að vinna fyrir seljanda eða gæta hagsmuna annarhvors aðilans. Skýrsluhöfundur fær borgað fyrir vinnu sína hvort sem húsið selst eða ekki. Skýrslunar eru að forminu til staðlaðar og eins uppbyggðar þar sem hverjum hluta eignarinnar er gefin einkunn. Fyrir áhugasama er hér sýnishorn af ástandsskýrslu eignar.
Þegar skýrslurnar eru tilbúnar er hægt að kaupa sérstaka tryggingu hjá flestum tryggingafélögum landsins til að tryggja sig gegn ýmsu sem upp getur komið - jafnvel þótt ástand sé metið sérstaklega og skrifaðar skýrslur.
Meira um það í næsta pistli....
Athugasemdir
Þetta er hárrétt hjá þér, langar því að senda þér þessa grein til upprifjunar hverning blessaður landinn hefur það ..
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2017/07/08/myglufaraldur_i_husnaedi_a_islandi_2/
Húseigendur vilja ekki að fréttist af myglu
Hvað heilsufarsvanda vegna myglu varðar segir Kjartan Svía eflaust gleggri við að þekkja einkennin, enda myglan eldra og meira viðvarandi vandamál þar í landi. Þá þarf alltaf að fara fram ástandsmat á eignum við kaup og sölu í Svíþjóð, en slíkt er valkvætt á Íslandi.
„Það kemur fram í slíku mati að ákveðnar rakaskemmdir séu til staðar eða jafnvel yfirvofandi. Þá veit fólk af því. Það hefur þau áhrif að eignin lækkar í verði en að sama skapi þá veit kaupandinn að hverju hann gengur og bætir úr því sem þarf að bæta. Það er meiri meðvitund um þetta.“
Kjartan segir ýmislegt sem kaupendur eigna átti sig ekki á, en vert er að hafa í huga.
„Sjálfur myndi ég til dæmis aldrei kaupa hús ef það væri nýbúið að mála kjallarann. Vegna þess að þá læðist að manni grunur að það hafi verið komnar rakaskemmdir og málað hafi verið yfir. Þetta er kannski sameiginleg reynsla sem margir í Svíþjóð búa að, en hérna kemur þetta fólki á óvart. Fólk er bara ánægt með að það sé nýmálað.“
Ólafur segir íslenska húseigendur síður vilja að það fréttist, komi upp raki eða mygla í eign þeirra, enda rýri það verðgildið þegar kemur að sölu. „Ástæðan er auðvitað sú að það er erfitt að fjarlægja algjörlega myglu eftir að hún er komin upp, en það er engu að síður hægt. Í stórum fyrirtækjum og stofnunum er hins vegar yfirleitt látið vita þegar svona kemur upp, það fréttist svo fljótt ef fólk hefur veikst. Svo þurfa stofnanir oft að flytja tímabundið, þannig vandamálið fer ekki fram hjá neinum.“
Kjartan liggur ekki á skoðun sinni á mikilvægi þess að fá fjármagn til að komast til botns í því af hverju raki og mygla hefur orðið jafnútbreitt vandamál hér á landi og raun ber vitni „Mér finnst lágmark að reyna að fá yfirsýn yfir vandamálið og átta sig á umfanginu. Þetta geta auðvitað verið rosalega ólík vandamál, en það ágætt að forgangsraða þeim. Þá er mikilvægt að bæta upplýsingaflæðið á þeirri þekkingu sem er til staðar.“
Kristen Jonsson (IP-tala skráð) 20.7.2017 kl. 13:04
Þakka þér Hallgrímur.
Lítið er að marka þessar ástandsskýrslur og engin er gerður ábyrgur fyrir þeim. Þetta er árangur endalausrar vélbyssahríðar af endalausum lögum og reglum stjórnmálamanna í Danmörku þar sem leitast er við að gera alla ábyrgðarlausa af öllu.
Kostnaðurinn við sölu á einni fasteign í Danmörku er svo yfirþyrmandi hár að hér heima myndi enginn samþykkja hann (transaction cost). Hann er sennilega einn sá hæsti í veröldinni. Öll fasteignasala myndu frjósa hér föst, vegna kostnaðar, tregðu og flækjustigs og fasteignaverð hækka vegna skriffinnsku einnar saman. Sú hækkun lendir öll í vösum þessa ábyrgðarflótta-iðnaðar.
Ég vona að við hér á Íslandi þurfum ekki að upplifa svona eignaupptökur.
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 20.7.2017 kl. 16:21
Myndi giska á að samanlagður kostnaður seljanda og kaupanda í Danmörku við eina sölu (færslu) sé um 8-10 prósent af kaupverðinu. Þetta skriffinnaveldi fasteignasala og lánafyrirtækja í Danmörku það gerræðislega stórt. Og svo er lánunum skuldbreytt að meðaltali á 3-5 ára fresti og við það myndast nýr höfuðstóll í hvert skipti og kostnaðinum er klaskað þar á, þannig að Danir eignast lítið í húsnæði sinu, enda einna skuldugastir allra þegar að þessu kemur.
Gunnar Rögnvaldsson, 20.7.2017 kl. 16:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.